Persónuverndarstefna Teflu
Gildir fyrir vefinn tefla.is
1. Ábyrgðaraðili, tilgangur og samskipti
Tefla (tefla.is) er íslenskur skákkennsluvefur fyrir börn og fjölskyldur. Við söfnum aðeins þeim upplýsingum sem þarf til að halda utan um aðgang, framvindu í skákkennslu, öryggi þjónustunnar og til að bæta kennslukerfið. Fyrirspurnir má senda á netfangið tefla@tefla.is.
2. Hvaða gögn eru geymd og hvernig eru þau notuð?
- Aðgangsupplýsingar: Netfang forráðamanns, nafn og prófílar nemenda (til dæmis fæðingarár og mánuður til að stilla erfiðleikastig).
- Námsframvinda: Leystar þrautir, demantar, stig, skákir gegn tölvuþjálfum og loknar kennslulotur.
- Þróun og rannsóknir: Samanlagðar og ópersónugreinanlegar niðurstöður (til dæmis hvar nemendur gera villur og hvaða þrautir reynast þungar) eru notaðar til að bæta kennsluna og geta nýst í skákfræðilegri umfjöllun eða kennsluefni án þess að hægt sé að rekja þær til einstaklinga.
- Vafrakökur: Nauðsynleg innskráningarkaka (
ck_session) og valfrjáls tölfræðikaka (Google Analytics án markaðs- eða auglýsingasöfnunar) eingöngu ef innskráður forráðamaður eða notandi 13 ára og eldri samþykkir hana. - Varðveislutími: Innskráningarlotur renna út eftir 90 daga án notkunar (og framlengjast sjálfkrafa þegar vefurinn er opnaður), einnota innskráningarkóðar (OTP) gilda í 15 mínútur og framvindugögn eru geymd á meðan fjölskylduaðgangur er virkur eða þar til forráðamaður eyðir prófíl eða aðgangi.
3. Persónuvernd barna og samþykki
Allir geta prófað Teflu án innskráningar. Samkvæmt 11. gr. laga nr. 90/2018 um persónuvernd geta börn yngri en 13 ára ekki veitt samþykki fyrir valfrjálsum vafrakökum. Valfrjáls tölfræðivöktun kveikir því aldrei á sér í gestaham og krefst innskráningar (auk PIN-staðfestingar forráðamanns ef foreldralás er virkur).
4. Réttindi þín og eyðing gagna
Þú getur hvenær sem er breytt stillingum fyrir vafrakökur á vefnum, fjarlægt hvern leikmannaprófíl fyrir sig í Svæði forráðamanns og eytt yfiraðganginum varanlega þegar allir prófílar hafa verið fjarlægðir (með staðfestingarorði, PIN-númeri og einnota tengli í tölvupósti). Einnig má hafa samband á tefla@tefla.is til að óska eftir yfirliti eða eyðingu gagna.
Við eyðingu prófíls eða aðgangs er öllum persónugreinanlegum upplýsingum (netfangi, nöfnum, prófílspjöldum, PIN-númerum, innskráningarlotum, tengingum og skráðum athugasemdum) eytt varanlega þegar í stað. Kennslufræðilegum mæligildum og leikjaröðum (til dæmis villumynstrum í þrautum, umhugsunartíma og leikjum án nafna eða reikningsauðkenna) er haldið eftir í óafturkallanlega nafnhreinsuðu formi (sbr. 26. lið formálsorða persónuverndarreglugerðarinnar og lög nr. 90/2018). Þannig má meta og þróa kennslukerfið áfram án þess að nokkur leið sé að rekja gögnin til einstaklinga.
5. Þróunarútgáfa, samstarfsaðilar og gjaldskrá
Tefla er í virkri þróun og er opin án endurgjalds. Í framtíðinni kann að bætast við hófleg gjaldtaka eða áskrift fyrir valfrjálst viðbótarefni, auk merkinga frá völdum innlendum samstarfs- og styrktaraðilum (án sjálfvirkra auglýsingaveita). Engin gjaldtaka hefst án skýrs samþykkis fyrirfram.